Útskriftarárgangur 1996

Velkomin á heimasíðuna okkar!

11.03.2008 18:09:15 / argangur

***Páskar 2008***

Halló halló allir!

Þetta verður greinilega árlegt hjá mér þ.e að blogga inn á þessa síðu okkar;) Það styttist í páskana!

Ég datt hér inn fyrir algjöra tilviljun og sá að það hafði eitt og annað dottið út. Ótrúlegt en satt þá mundi ég lykilorðið og ákvað að setja upp nýja könnun og niðurtalningu í sumarið 2011.

Ég ætla að setja upp nýja tenglasíðu hér til vinstri þar sem sumar af þessum bloggsíðum eru dottnar út. Ég býst fastlega við því að fólk sé að stunda "mitt svæði" eða sé á "andlits bókinni". Sendið mér póst á rs9@hi.is">srs9@hi.is ef þið eruð með blogg, mitt svæði eða andlitsbók!

Bestu kveðjur,

Sólveig R.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 09:51:00 / argangur

Páskar 2007

Kæru fyrrum skólafélagar,

Ég vona innilega að þið haldið áfram að fylgjast með síðunni þó svo að langt sé í næsta hitting. Mér sýnist á öllu(skoðanakönnun hér til hægri) að næsti hittingur verði eftir ca. 4 ár. Ég hef tekið út og sett inn nýja skoðanakönnun. Einnig er teljari hér hægra megin sem telur niður fram að næsta hitting.



Það verður kannski ekki mikið að gerast hér á síðunni en endilega látið okkur vita ef þið breytið um e-mail og annað. Það átti enn eftir að finna heimilisföng og e-mail hjá nokkrum sem voru m.a búsettir erlendis og ekki náðist í fyrir síðasta hitting.

Með Gaggakveðjum! srs


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 08:42:06 / argangur

Myndir frá Hömrum

Hæ hæ,

Ég vildi bara láta ykkur vita sem ekki komust og þið hin sem munið ekkert eftir helginni að það eru komnar myndir hér til vinstri frá Rósu, Birnu, Írisi Rán og Kötu H. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir og ef það eru fleiri sem luma á einhverjum góðum þá endilega sendið mér póst á rs9@hi.is">srs9@hi.is og ég hendi þeim hérna inn.

Gaggakveðjur,

Sólveig Rósa


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 00:21:14 / argangur

Teygjuleikurinn!!!

B-bekkurinn vann teygjuleikinn með 60 teygjur.....ókei....ókei....svolítið sein að tilkynna úrslitin, en fyrirliðinn Hólmar skilaði inn flestum teygjum í lok kvöldsins. Þess má geta að ég var búin að missa allar mínar teygjur frá mér áður en við fórum upp í rúturnar fyrir utan "Dynheima", vann mér síðan ekki inn eina einustu teygju. Jói Kristins vorkenndi mér eitthvað þegar líða tók á kvöldið og hann gaf mér eina teygju sem ég ætlaði mér svoleiðis að passa uppá....nei nei...kemur ekki Petra og "rænir" henni af mér í lok kvöldsins. Þess má geta að Petra var einstaklega góð í þessum leik, hún náði til að mynda teygju af Hólmari með því að spurja hann hvort konan hans væri komin upp á fæðingardeild. Þess má geta að hann varð pabbi daginn eftir(eða á sunnudeginum););)

Ef ég rifja upp daginn, þá fannst mér svolítið fyndið að heyra Baldvin segja frá því að hann hafi lítið fylgst með þessum bekk en hann væri samt með það á hreinu að við værum búin að fríkka eitthvað með árunum;)

Eins þegar Bjössi slanga sagði þegar við vorum búin að afhenda honum viðurkenningarskjalið að við værum "greinilega skemmtilegri full en ímyndunarfull";);)

Takk kærlega fyrir frábæra helgi, mér fannst laun erfiðisins(ekki svo erfitt með 7 aðra í skipulagsnefnd) að skipuleggja þetta allt, að sjá hvað allir voru ánægðir og glaðir á laugardeginum. Það var síðan ekki síðra að skoða myndirnar sem Birna, Rósa og Kata eru búnar að setja inn, allir brosandi og glaðir....enn betra. Takk...bara enn og aftur!!

Með gaggakveðjum,

Sólveig Rósa


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 06:35:33 / birnabald

Takk fyrir síðast....

Ég skal segja ykkur það.....djö snilld var að sjá ykkur aftur...illa sátt við þetta...sérstaklega Frómans liðið;):haha::haha:8)

Vona að fólk hafi notið helgarinnar eins vel og ég...

Er búin að setja inn myndaslóð hérna til hliðar.  Annars getið þið nálgast þær hér: http://www.picturetrail.com/bibban5

Endilega látið vita ef þið eigið myndir...því þær segja víst meira en þúsund orð ;)

Ég meina ég er enn að lifa á Hansatöktunum....bahahahahah...

........Þangað til næst :lol::lol::lol::lol::lol:


» 22 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 23:14:24 / argangur

Útihátíðin "Gagginn 1996"

Hæ hæ:D,

Það er komin mikil stemmning fyrir föstudagskvöldinu og vonandi láta allir sjá sig þar sem verða komnir í bæinn og auðvitað allir hinir sem eiga heima í bænum;)

Smá upplýsingar varðandi laugardaginn, það verður hægt að borga 3000 kr.(þeir sem eru búnir að greiða staðfestingargjaldið) inná reikning fyrir kl. 18 á föstudaginn, fyrir þá sem nenna ekki að mæta með peninginn á laugardaginn. Passið bara að skrifa í "skýringu" nafn og 3000 kr. t.d   "Sólveig Rósa-3000"

Þið getið lagt inná;

565-14-606851  KT:040680-3579

Veðurspáin er góð fyrir laugardaginn og vonandi lætur rigning ekki sjá sig.8) Muna bara að vera klædd eftir veðri og muna síðan eftir því að kíkja á bekkjarlitinn ykkar(sjá frétt neðar). Heyrst hefur að einhver hafi verslað sér eyrnalokka í bekkjarlitnum og enn aðrir keypt sér andlitsmálningu.....það verður gaman að sjá útfærsluna á þessu hjá ykkur:haha:

Með gaggastuðkveðjum,

Nefndin


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 23:33:26 / argangur

ÓVISSUFERÐ!!!!

Föstudagurinn 14. júlí 2006

Óformlegur hittingur á efri hæðinni á Cafe Amor þar sem verður bjórtilboð frá 22:00-00:00 fyrir þá sem vilja hita upp fyrir laugardaginn.

Laugardagurinn 15. júlí 2006

Mæting við Brekkuskóla kl. 15:00.

Rúturnar munu koma um þrjú ef fólk vill henda inn dótinu sínu(búsinu&blandinu). Við leggjum síðan af stað í óvissuferð frá Brekkuskóla.

Það sem gott er að hafa með sér eða á sér;

3.000 kr. til þess að borga Evu gjaldkera(skylda að hafa með sér)

Drykk fyrir matinn og auðvitað eitthvað á undan og á eftir(svona þegar þorstinn sækir að)

Léttur klæðnaður eða eftir veðri

Eitthvað sem er í þeim lit sem bekkurinn þinn hefur fengið úthlutað t.d húfa, slæða, buxur, skór, andlitsmálning(má vera hvað sem er).

Góða skó

Góða skapið

 

Með gaggakveðjum,

Undirbúningsnefndin

Arnaldur, Arna, Birna, Eva, Petra, Hólmar, Stulli, Sandra, Kristján og Sólveig


» 20 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 23:31:10 / argangur

Bekkjarlitir!!

10-A  Gulur

10-B  Rauður

10-C  Grænn

10-D  Blár

10-E  Svartur

10-F  Hvítur


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 12:09:04 / argangur

Spennandi

Hæ hæ allir,

Það styttist í að það komi frétt hérna inn varðandi dagskránna og fleira....bara seinna í dag;););) Eru ekki allllirr orrðnnirrr sppennnntttirrrr?????

Bestu kveðjur,

Sólveig Rósa


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 11:24:19 / argangur

28 dagar í Gaggaríjúníon

Hæ allir,

Undirbúningsnefndin hélt fund í gærkvöldi og gekk hann vel. Við tókum forskot á sæluna og rifjuðum upp gamlar sögur úr Gagganum sem kveikti enn meira í okkur að gera þetta almennilega og bjóða ykkur upp á góða dagskrá. Dagskráin er komin vel á veg og verður hún sett inn á vefinn um leið og hún er fullunnin. Ég get þó sagt ykkur að það verður létt sumarstemmning yfir þessu ríjúníoni og auðvitað erum við búin að panta góða veðrið.

Ég vona bara að þeir sem eru ekki búnir að borga staðfestingargjaldið en ætla sér samt sem áður að vera með sendi póst á einhvern í undirbúningsnefndinni og láti vita af sér. Þátttakan er góð og það verður frábært að hitta alla aftur;);)

Með gaggakveðjum,

Sólveig Rósa


» 15 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 12:38:23 / argangur

15. júlí er dagurinn!

Sæl öll,

Það styttist í þetta og skráning á ríjúníoinið er komin vel á veg. Það eru einhverjir sem fengu frest með að borga staðfestingargjaldið og enn aðrir sem eru að reyna hliðra til vinnu svo þeir komist.

Endilega látið vita ef þið hafið hugsað ykkur að mæta en hafið ekki borgað staðfestingargjaldið. Það er fundur hjá undirbúningsnefnd á fimmtudagskvöldið og fyrir þann tíma verður þátttökufjöldi að vera kominn á hreint.

Aðaldagurinn verður á laugardeginum 15. júlí frá hádegi og fram eftir kvöldi. Undirbúningsnefndin mun á fimmtudaginn setja upp dagskránna og birtist hún hér á vefnum væntanlega á föstudaginn.

Bestu kveðjur,

Sólveig Rósa 10-A


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 17:27:23 / argangur

ÁRÍÐANDI!!!!!!!!!

Halló halló,

Eins og allir vita þá er dagurinn í dag, síðasti dagurinn til þess að greiða staðfestingargjaldið. Það gleymdist að biðja ykkur um að þegar þið greiðið þá er gott að þið setjið nafn þess sem er að greiða í "skýring". Við stöndum nefnilega uppi með heilan helling af kennitölum sem við þurfum að fara rýna í(við tökum þetta á okkur).

Þið sem náið ekki að borga fyrir morgundaginn en ætlið að mæta sendið mér (olveigr@visir.is">solveigr@visir.is) póst eða sms(6995280) og látið mig vita af ykkur.

Staðfestingargjaldið er

1.500 krónur

og reikningsnúmerið er 

565-14-606851  KT:040680-3579

og munið að setja nafn þess sem er að greiða í "skýring"

Með gaggakveðjum,

Sólveig Rósa


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 15:39:09 / argangur

Myndir

Fleiri myndir komnar undir Myndasíða 1. :) :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 12:53:55 / argangur

Tónlist fyrir partýið

Heil og sæl Þá styttist í partýið mikla.. Til að fullkomna partýið þarf að sjálfsögðu að vera góð tónlist. Heiddi Hauks hefur tekið að sér að sjá um hana og ætlar að skella á disk tónlist fyrir kveldið, þeir sem eru með uppástungur að góðum lögum frá gaggaárunum endilega sendið póst á hann á heidarh@bl.is Sjáumst kát og spræk kv Sandra

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 20:53:07 / argangur

NETFÖNG ÓSKAST

Hæhæ..enn vantar netföng hjá nokkrum. Kíkjið á listann hérna vinstra megin undir Netföng óskast og athugið hvort þið séuð enn þar. Ef þið eruð þar eða þekkið einhvern á listanum kommentið þá og látið vita um netföng!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Talning
Eftir 437 daga
Rejúníon árið 2011?
Könnun
Uppáhalds Gaggakennarinn þinn...